Afsláttur: SUMAR2020
Gistiheimilið Númi er staðsett þar sem áður var rekinn Héraðsskóli og Hótel að Núpi í Dýrafirði. Þar er nú boðið upp á einfalda en þægilega gistingu og fyrsta flokks veitingar í mat og drykk. Ennfremur verða haldin ýmisleg námskeið, fyrirlestrar og menningarviðburðir: hér er viðburðadagatalið okkar. Tjaldsvæði er við gistiheimilið, hentar líka fyrir ferðavagna. Utan sumaropnunar er opið fyrir viðburði og veislur, námskeið og fundahöld. Pláss er fyrir 90 manns í gistingu, og enn fleiri í matsal. Fundarsalir af mismunandi stærðum. Einungis í hálftíma akstursfjarlægð frá Ísafirði.
Staðurinn
Núpur í Dýrafirði er sögufrægur staður, fornt höfðingjasetur. Héraðsskólinn að Núpi var stofnaður þar árið 1907 og starfræktur allt til ársins 1992. Síðan var rekið þar hótel á sumrin allt til ársins 2017. Nú hafa nýir eigendur ákveðið að endurvekja starfsemi á staðnum og bjóða upp á gistingu á hagstæðu verði, aðstöðu fyrir tjöld og vagna og veitingaþjónustu. Vestfirðir eru enn lítið heimsóttir af ferðamönnum og er sannkölluð perla. Fossinn Dynjandi, sem verður í aðeins hálftíma akstursfjarlægð frá Núpi eftir opnun gangna milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, er einn fegursti foss landsins og gott dæmi um náttúrutöfra Vestfjarða. Staðsetning Núps, í næsta nágrenni við Þingeyri og Flateyri og skammt frá Suðureyri og Ísafirði, er tilvalin fyrir ferðamenn sem vilja kanna það sem þeir staðir hafa upp á að bjóða, og njóta kyrrðar í sveitaumhverfinu þess á milli.
Herbergi
Tveggja manna herbergi
Herbergin eru öll með tveimur stökum rúmum, handlaug og skáp. Sameiginleg snyrting á gangi.
Studio
Tveggja manna herbergi með tvö rúm og sér baðherbergi. Sér inngangur.

Fjölskylduherbergi
Herbergi með 4 einbreiðum rúmum, handlaug og skápum. Sameiginleg snyrting á gangi.


Tjaldsvæði
Rafmagn fyrir húsbíla og fellihýsi. Salerni og sturtur á gistiheimilinu. Útivaskur með heitu og köldu vatni. Gjald: 1.500 ISK á mann (frítt fyrir börn 16 ára og yngri), 1.300 ISK á dag fyrir rafmagn
Sameiginlegar sturtur
Á hverri hæð eru salerni og sturtur með handlaugum og hárblásurum fyrir bæði karla og konur.

Upplifun, fræðsla og sköpun
Veitingahúsið
Morgunmatur, hádegisverður, vöfflukaffi og kvöldverður.
Morgunmatur er kl 8 – 10: kalt hlaðborð (continental breakfast), kaffi eða te, frítt fyrir börn 10 ára og yngri
Hádegisverður kl 12 – 14: súpa og heimabakað brauð
Kaffitími frá kl 15-17: tertur og vöfflur
Kvöldverður kl 19-21 matreiddur af meistarakokki
Refamyndinn hans Jóhanns Óla ljósmyndara var notuð fyrir merkishönnun okkar. Sjá fleiri myndir eftir Jóhann Óla hér. Tófan tilheyri fjölbreyttu dýralífi vestfjarða
Gistiheimilið Númi
Héraðsskólinn að Núpi í Dýrafirði
Opnunartími
Sumaropnun frá og með 24.06.2020. Húsið opnar yfir veturinn eftir hópapöntunum. Veisluþjónusta.
Heimilisfang
Gistiheimilið Númi, Héraðsskólinn að Núpi í Dýrafirði, 471 Þingeyri
Hafa Samband
(00354) 844 0064
numi@numi.is